Ferðalýsingar

Áherslur vors og sumars 2012

--------------------------

Dagsgöngur á Snæfellsjökul


Horfa á myndband


Hlusta á pistil Eríks í Víðsjá


Búum til sérferðir á jökulinn eftir óskum hópa sem telja fleiri en 10 manns.



Sjálfsagt að taka með sér skíði eða snjóbretti því færið getur verið alveg skínandi. Drögum dótið upp á púlkum.


--------------------------

Orkuhleðsla í tvo daga



Nýtt / Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull - Orkuhleðsla


Í þessari undraveröld þjóðgarðsins er sérstakt og fjölbreytilegt landslag annars vegar og sambýli manna innbyrðis og við náttúruna hins vegar, hvort tveggja megineinkenni svæðisins. Hér hafa stigið fram...

Sjá nánari lýsingu HÉR: Orkuhleðsla

------------------


Snæfellsjökulsþjóðgarður

og nágrenni



Trússferð með uppihaldi í 3 daga allan hringinn gangandi og hjólandi. Mikil fjölbreytni og enginn dagur eins. Farið frá Arnarstapa upp á Jökulháls og yfir til Ólafsvíkur, Rifs, Hellissands, Öndverðarness, Djúpalóns, Hellna og aftur að Arnarstapa. Á leiðinni veltum við fyrir okkur hvað gerir þetta svæði svona einstakt og hvers eðlis orkan sé sem þar er að finna. Sjá nánari lýsingu hér.

---------------------------------------------


Miðjan í miðið

 



Blönduð hjóla- og gönguferð í 3 daga. Trússbíll fylgir. -  Hér miðum við á miðju Snæfellsnessins, kjarnann og blómann myndu sumir segja. Eins og víðar á Breiðafjarðarsvæðinu er hér mögnuð náttúran og sagan í forgrunni. Frá Sykkishólmi fylgjum við t.d. sporum pílagrímsins William Collingwood (1897) og ljósmyndarans, Einars Fals (2007) og spáum í þeirra sjónarhorn. 


Sjá nánari lýsingu hér: Ferðalýsing Miðjan


------------------


Inn til Dala og út til Stranda




Ganga - reiðhjól - kajak - útreiðar

Trússferð  með uppihaldi  í 3-4 daga um héruð fyrir botni Breiðafjarðar.  Farið frá Laugum í Hvammssveit yfir á Skarðsströnd, um Klofning, Fellsströnd og Hvammssveit aftur að Laugum.

 Sjá nánari lýsingu hér: Ferðalýsing Inn til Dala 2012

----------------------------------------------------------------------------------------------


Eftirfarandi ferðir verða farnar eftir pöntun:


Hafratindur

 

Toppur með kryddi nærliggjandi dala og stranda


Gönguferð í 2 daga -Trússferð.  Gengið frá Laugum í Hvammssveit inn og upp úr Sælingsdal, upp á Hafratind (930m). Frá tindinum er gengið fram eftir brúnum Fagradals að bænum Ytri-Fagaradal þar sem heimafólk bíður með fangið fullt af næringu, sögum og hjartahlýju. Veislan heldur áfram næsta dag því hér hefur margt markvert gerst og gerist enn. 

-
 


----------------------------------------


Land og saga

 

Laxdælu, Sturlungu, ferðalanga, álfa, skálda og afreksmanna; ásta þeirra, afbrýði, haturs, óhófs, ofsa, ágirndar...

 

Göngu- og hjólaferð í 2 daga. - Trússferð.  Hjólað fyrri daginn frá Laugum fram Sælingsdalinn og síðan gengið upp á Sælingsdalsheiði, niður í Hvammsdal og hjólað fram Staðarhólsdal að Þurranesi. Þar er gist og notið veitinga og gestrisni heimamanna. Seinni daginn er hjólað til baka suður Svínadal til Lauga með viðkomu á sögustöðum sem eru fjölmargir á leiðinni. Ferðinni lýkur með eldsteiktum lummum, skóagarkaffi og nikkuleik í yndisskóginum í Sælingsdalstungu. - Sjá nánari lýsingu hér.

----------------------------------------


Klofningsfjall og Dagverðarnes

 

Útsýni yfir Breiðafjörðinn í allri sinni dýrð

 

Gönguferð í 2 daga - Trússferð.  Enginn staður við Breiðafjörðinn getur státað af öðru eins útsýni yfir eyjarnar og fjörðinn eins og Ballarárfjall og Klofningsfjall á Skarðsströnd. Hvergi á Íslandi eru meiri líkur á að sjá breitt vænghaf hafarnarins en einmitt á þessu svæði. Þeir geta jafnvel verið hér saman margir í hóp. - Fjörðurinn er verndaður með lögum vegna landslags, jarðmyndana, lífríkis og menningarminja. - Sjá nánari lýsingu hér.



----------------------------------------

Ólafsdalur 

Nýsköpunarmiðstöð

Göngu- og hjólaferð í 2 daga. Annars vegar er rifjuð upp saga Torfa Ólafssonar og þeirrar nýsköpunarmiðstöðvar sem hann rak fyrir ekki svo löngu síðan (1880-1908) í Ólafsdal. Við skoðum aðstæður þá og nú og hvað við getum nýtt og lært af þessari sögu í dag. Hins vegar skoðum við landið, sveitina, mannlífið, fjörðinn... og njótum þess sem það hefur að gefa. Fyrsta daginn er gengið í fótspor Torfa yfir fjallið til móts við Bessatungu og hjólað til baka í Ólafsdal. Seinni daginn hjólum við í kringum Gilsfjörðinn með viðkomu í Arnarsetri í Króksfjarðarnesi og heilsum upp á heimafólk við fjörðinn. Síðan er kjörið að bæta við þriðja deginum og taka þátt í Ólafsdalshátíð sem byrjar um miðjan dag á sunnudag.

- Sjá nánari lýsingu hér.

----------------------------------------


Massífir sögustaðir

Laugar - Hvammur - Sælingsdalstunga

Gönguferð og/eða göngu- og hjólaferð  í 1 dag. Fyrst er gengið frá Laugum upp Hvítahrygg og upp á Svörtukletta, yfir fjallið niður að Hvammi meðfram Ófærugili og fram Þverdalinn. Síðan er gengið eða hjólað til baka til Krosshólaborgar um Paradís, Banabrekkur og upp í Sælingsdalstungu. Þar lýkur ferðinni með eldsteiktum lummum, skógarkaffi og harmónikkuleik.

Þessa ferð má sérsníða eftir þörfum, getu og áhuga ferðalanga.


-------------------------------------------------------------------------------------------------------


Barðaströndin og Breiðafjarðareyjar


Fyrst og fremst hjólaferð en líka siglt og gengið - 5 daga ferð. Við byrjum á að nesta okkur með fróðleik á Eldfjallasafni og hjá Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi og tökum síðan ferjuna Baldur yfir að Brjánslæk. Hjólum á þrem dögum til Reykhóla og njótum veitinga, gestrisni og fróðleiks heimamanna. Á fimmta degi er siglt með Eyjasiglingu frá Stað á Reykjanesi út í Skáleyjar, áfram út í Flatey og er hringnum síðan lokað með sundi og góðum mat í Stykkishólmi. - Sjá nánari lýsingu hér.

Veittur er 10% afsláttur á þessari ferð ef 10 eða fleiri eru skráðir samtímis.


---------------------------------------------

Snæfellsnes á lengd og breidd


Trússferð  meðuppihaldi  í 5 daga að mestu hjólandi en líka gangandi þar sem öðru verður ekki við komið. Byrjað á að nesta sig með fróðleik á Eldfjallasafninu í Stykkishólmi, Náttúrustofu Vesturlands og Minjavernd. Úr Stykkishólmi er stutt á sögufrægan stað; Helgafell þar sem við óskum okkur fararheilla áfram út í Grundarfjörð, Hellissand, Arnarstapa og Staðarsveit sem verður okkar síðasti næturstaður. Hér er þemað "lengd og breidd" á ólíkum sviðum á svæði sem stundum er sagt að sé Ísland í hnotskurn. - Sjá nánari lýsingu hér.

Veittur er 10% afsláttur á þessari ferð ef 10 eða fleiri eru skráðir samtímis.


---------------------------------------------


Eyjar, dalir, strandir og menning


Trússferð  með uppihaldi  í 7 daga. Þema þessarar ferðar má segja að sé breiddin; líf manna og dýra við fjölbreytt skilyrði, fyrr og nú við breiðan fjörð. Eins og í öðrum ferðum Út og vestur taka heimamenn á móti okkur, sýna okkur og segja frá, næra okkur og nesta með ýmsu efni. Þeir munu líka spyrja eins og annars, ef að líkum lætur. Ferðin byrjar og endar í Stykkishólmi. - Sjá nánari lýsingu hér.

Veittur er 10% afsláttur á þessari ferð ef 10 eða fleiri eru skráðir samtímis.


---------------------------------------------


Barðaströnd, Rauðisandur, Látrabjarg...


Hjólað og gengið. Trússferð með uppihaldi  í 5 daga. Fyrsti viðkomustaður í þessari ferð er akademían í Stykkishólmi: Eldfjallasafnið, Náttúrustofa Vesturlands og Minjavernd Vesturlands og Vestfjarða. Í þessari ferð gefst tækifæri til að fara víða um einstaka náttúru á tiltölulega skömmum tíma, með goluna í hárinu og skegginu, vegna ferðamátans. Með aðstoð heimamanna er allt sem við þurfum við hendina. - Sjá nánari lýsingu hér


Veittur er 10% afsláttur á þessari ferð ef 10 eða fleiri eru skráðir samtímis.


---------------------------------------------


--------------------------------------------------

Breiddin

Gengið, hjólað, keyrt og siglt inn til Dala, fjarða, eyja og jökla í spor fornfrægra kvenna og karla, álfa, skálda...

 

Trússferð  með uppihaldi  í 5 daga. Í þessa ferð er raðað saman mörgu af því besta sem Breiðafjarðarsvæðið hefur fram að færa. Hér er mikil breidd í landslagi, dýralífi (sérstaklega fuglalífi) og mannlífi. Allt speglast það í sögum og menningarlífi svæðisins en einmitt hér var menningarlíf sérlega blómlegt um aldir. Hér hefur saga Íslendinga mótast að verulegu leyti og hér var einnig hreyft nokkuð við örlögum annarra þjóða. - Ferðin er í þróun. Sjá nánari lýsingu: Ferðalýsing Breiddin.



Flettingar í dag: 180
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 256
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 166703
Samtals gestir: 45279
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 18:06:35

Google Analytics